11.3.2008 | 09:55
Jæja þetta er nú ekki hægt sko!!!
Jæja Dabbaa!!!
Þetta gengur ekki hjá mér hehe ég er geðveikt löt að blogga :) En helgin hjá mér var í stórum dráttum svona:
Föstudagur: Ég fór heim úr skólanum og til afa og ömmu. Lærði heimavinnuna mína og chillaði svo bara Fór svo heim og knúsaði hundinn minn og fékk mér að borða. Horfði svo á sjónvarpið og fór svo að sofa.
Laugardagur: Vaknaði og fékk mér að borða og fór í sturtu og gerði mig sæta. Fór svo í kórbúninginn minn og málaði mig aðeins. Brunaði svo niður á háskólatorg og söng með nokkrum kórmeðlimum á ráðstefnu uranríkisráðuneytisins vegna Alþjóðlega kvennadagsins. (Til hamingju stelpur!!) Síðan fór ég niður í Langholtskirkju og við gerðum klárt fyrir tónleikana okkar. Settum allar kökurnar á borðið og svona. Æfðum svo á fullu alveg í klukkutíma, og gerðum okkur klárar. Síðan komu allir gestirnir og við sungum fyrir fullri kirkju í sirka einn og hálfan tíma. (Takk stelpur mínar fyrir frábæran dag!!!) Fórum síðan og fengum okkur köku og fórum síðan heim.
Sunnudagur: Vaknaði og fékk mér að borða og fór svo að LÆRA. ég lærði ALLAN daginn fyrir 2 próf sem ég varð að fara í á mánudaginn (í gær) Gekk vel. Síðan fór ég að sofa.
Jæja hef þetta ekki lengra í bili, vonandi verð ég duglegri að blogga héðan af.
Bless:
Dabbaa
Athugasemdir
Þú ert nú meiri dugnaðarforkurinn. Takk fyrir mjög skemmtilega tónleika
Mamma (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 20:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.